Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 27. desember 2020 11:17
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Leeds og Burnley: Dyche vantar kantmenn
Erik Pieters byrjar á kantinum í dag.
Erik Pieters byrjar á kantinum í dag.
Mynd: Getty Images
Leeds United og Burnley mætast í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og er Jóhann Berg Guðmundsson fjarri góðu gamni vegna meiðsla.

Leeds hefur verið mikið upp og niður á sínu fyrsta úrvalsdeildartímabili eftir langa bið. Marcelo Bielsa er við stjórnvölinn og gerir hann aðeins eina breytingu á liðinu sem tapaði 6-2 gegn Manchester United í síðustu umferð.

Pascal Struijk kemur inn í hjarta varnarinnar fyrir fyrirliðann Liam Cooper sem er fjarri góðu gamni.

Sean Dyche gerir tvær breytingar á liði Burnley sem lagði Wolves að velli í síðustu umferð og eru kantarnir til vandræða þar sem mikið er um meiðsli þessa dagana.

Hvorki Dwight McNeil né Robbie Brady geta verið með í dag og því taka Erik Pieters og Josh Benson sér stöðu á sitthvorum kantinum.

Leeds: Meslier, Dallas, Ayling, Struijk, Alioski, Raphinha, Rodrigo, Phillips, Klich, Harrison, Bamford.
Varamenn: Casilla, Poveda, Roberts, Costa, Hernandez, Davis, Shackleton, Jenkins, Casey.

Burnley: Pope, Taylor, Lowton, Tarkowski, Mee, Pieters, Brownhill, Westwood, Benson, Barnes, Wood.
Varamenn: Peacock-Farrell, Norris, Stephens, Rodriguez, Bardsley, Long, Dunne, Mancini, Mumbongo.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 78 26 +52 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 53 +8 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner