Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. desember 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Davies íþróttamaður ársins í Kanada - Náði ótrúlegum hraða
Mynd: Getty Images
Alphonso Davies kom til baka úr meiðslum snemma í desember og var í byrjunarliðinu í deildarleik FC Bayern gegn Union Berlin 12. desember.

Eftir aðeins tíu mínútur af leiknum var Davies búinn að bæta hraðamet þýska deildartímabilsins þegar hann mældist á 35,94km hraða.

Nokkrum dögum fyrir þann leik hlaut Davies nafnbótina íþróttamaður ársins í Kanada ásamt Laurent Duvernay-Tardif, leikmanni Kansas City Chiefs í bandarísku NFL deildinni. Það var í þriðja sinn í 82 ára sögu verðlaunanna sem þeim var deilt á milli tveggja sigurvegara.

Hinn tvítugi Davies var valinn sem knattspyrnumaður ársins enda varð hann sá fyrsti frá Kanada til að vinna Meistaradeild Evrópu. Davies er bráðefnilegur og spilar fyrir eitt af bestu liðum heims, FC Bayern München.

Í júní var Davies valinn sem nýliði ársins í þýsku deildinni og var valinn í lið ársins af tímaritinu vinsæla Kicker. ESPN telur Davies vera næstbesta vinstri bakvörð heims þrátt fyrir ungan aldur, skammt á eftir Andy Robertson bakverði Liverpool.

Davies hefði líklegast ekki þurft að deila verðlaununum með Duvernay-Tardif ef ekki fyrir kórónuveiruna. Duvernay-Tardif, sem er læknismenntaður, hætti að spila ruðning með Kansas City til þess að sinna sjálfboðaliðastarfi í baráttunni gegn Covid.
Athugasemdir
banner
banner
banner