Manchester City hélt hreinu í þrettánda sinn á tímabilinu er liðið lagði Newcastle United að velli í gærkvöldi.
Vandamál Man City eru búin að breytast á milli áranna, núna er liðið ekki að skora nægilega mikið af mörkum en varnarlínan hefur verið ansi góð. Þar hafa Portúgalarnir Ruben Dias og Joao Cancelo stigið upp og gert frábæra hluti.
Ekkert lið í helstu deildum Evrópu hefur haldið hreinu jafn oft og City á tímabilinu. Liðið er búið að spila 23 leiki og hefur haldið 13 sinnum hreinu, þar á meðal í 8 af síðustu 10 leikjum.
Það verður áhugavert að sjá hvort City getur haldið áfram að verjast svona vel. Þá verður spennandi að fylgjast með endurkomu Sergio Agüero í liðið enda er hann líklegur til að raða inn mörkunum eftir áramót.
#ManCity have kept their 13th clean sheet of the campaign, more than any other team within the top five European leagues this season.
— Man City Report (@cityreport_) December 26, 2020
[via @OptaJoe] pic.twitter.com/Q8hXaCbDgY
Athugasemdir