Raul Jimenez mun mæta á leik á Molineux leikvanginum í fyrsta sinn í kvöld eftir að hann höfuðkúpubrotnaði í jafntefli gegn Arsenal í lok nóvember. Hann þurfti að fara beinustu leið á sjúkrahús eftir skallaeinvígi við David Luiz.
Jimenez verður í stúkunni er Úlfarnir taka á móti Tottenham í stórleik í kvöld. Jimenez þurfti að gangast undir aðgerð á höfði og verður því ekki með í næstu leikjum.
Góðvinur hans og liðsfélagi Jonny mun væntanlega sitja með honum. Hann hefur verið að glíma við hnémeiðsli síðan í byrjun ágúst.
„Við söknum hans gríðarlega. Það er ekki bara það sem hann gerir á vellinum heldur hversu mikilvægur hann er fyrir liðsheildina og stemninguna. Leikmenn treysta honum og trúa að þeir geti snúið við hvaða stöðu sem er með hann í broddi fylkingar," sagði Nuno Espirito Santo um Jimenez á dögunum.
„Það er mjög erfitt að leysa svona leikmann af hólmi og við þurfum að finna nýjan sóknarmann í janúar."
Fabio Silva var keyptur til Wolves fyrir 35 milljónir punda og hefur farið vel af stað hjá sínu nýja félagi. Hann nægir þó ekki til að leysa mann eins og Jimenez af hólmi.
Úlfarnir eru búnir að tapa þremur af síðustu fjórum leikjum sínum og er liðið um miðja deild með 20 stig eftir 14 umferðir. Þetta verður í fyrsta sinn sem liðið mætir Matt Doherty eftir að hann var seldur til Tottenham síðasta sumar.
Diogo Jota var einnig seldur frá félaginu en Pedro Neto og Daniel Podence hafa sýnt fína takta.
Stöðutaflan
England
Premier league - karlar
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Man City | 32 | 22 | 7 | 3 | 76 | 32 | +44 | 73 |
2 | Arsenal | 32 | 22 | 5 | 5 | 75 | 26 | +49 | 71 |
3 | Liverpool | 32 | 21 | 8 | 3 | 72 | 31 | +41 | 71 |
4 | Aston Villa | 33 | 19 | 6 | 8 | 68 | 49 | +19 | 63 |
5 | Tottenham | 32 | 18 | 6 | 8 | 65 | 49 | +16 | 60 |
6 | Newcastle | 32 | 15 | 5 | 12 | 69 | 52 | +17 | 50 |
7 | Man Utd | 32 | 15 | 5 | 12 | 47 | 48 | -1 | 50 |
8 | West Ham | 33 | 13 | 9 | 11 | 52 | 58 | -6 | 48 |
9 | Chelsea | 31 | 13 | 8 | 10 | 61 | 52 | +9 | 47 |
10 | Brighton | 32 | 11 | 11 | 10 | 52 | 50 | +2 | 44 |
11 | Wolves | 32 | 12 | 7 | 13 | 46 | 51 | -5 | 43 |
12 | Fulham | 33 | 12 | 6 | 15 | 49 | 51 | -2 | 42 |
13 | Bournemouth | 32 | 11 | 9 | 12 | 47 | 57 | -10 | 42 |
14 | Crystal Palace | 32 | 8 | 9 | 15 | 37 | 54 | -17 | 33 |
15 | Brentford | 33 | 8 | 8 | 17 | 47 | 58 | -11 | 32 |
16 | Everton | 32 | 9 | 8 | 15 | 32 | 48 | -16 | 27 |
17 | Nott. Forest | 33 | 7 | 9 | 17 | 42 | 58 | -16 | 26 |
18 | Luton | 33 | 6 | 7 | 20 | 46 | 70 | -24 | 25 |
19 | Burnley | 33 | 4 | 8 | 21 | 33 | 68 | -35 | 20 |
20 | Sheffield Utd | 32 | 3 | 7 | 22 | 30 | 84 | -54 | 16 |
Athugasemdir