Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 27. desember 2020 18:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Johnstone: Ég hafði ekki mikið að gera í leiknum
Sam Johnstone.
Sam Johnstone.
Mynd: Getty Images
Sam Johnstone varði frábærlega frá Roberto Firmino undir lokin þegar West Brom gerði jafntefli við Liverpool á Anfield í kvöld.

Johnstone hefur verið frábær í marki West Brom á tímabilinu og reynst ófáum andstæðingum erfiður.

„Það er erfitt að koma á staði sem þessa. Við lögðum mikið á okkur, við hlupum í 94 mínútur sem var erfitt en náum í frábært stig á erfiðum útivelli. Það er sigurtilfinning sem fylgir þessu," sagði Johnstone eftir leikinn.

„Við vissum að þeir myndu vera mikið með boltann. Það tók okkur tíma að komast inn í leikinn, við hlupum meira í seinni hálfleik. Stjórinn sagði okkur að halda áfram, það væru alltaf möguleikar."

„Þetta var frábær varsla (gegn Firmino). Til að vera hreinskilinn þá hafði ég ekki mikið að gera í leiknum, en sem betur fer náði ég að verja í lokin."


Athugasemdir
banner
banner
banner