Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 27. desember 2020 17:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Katar: Tveir sigrar í röð hjá Íslendingaliði Al Arabi
Heimir hér skælbrosandi.
Heimir hér skælbrosandi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Al Arabi vann sinn annan sigur í röð þegar liðið mætti Al Sailiya á útivelli í dag.

Það var Mehrdad Mohammadi sem skoraði eina mark leiksins fyrir Al Arabi á markamínútunni, 43. mínútu. Staðan var 1-0 í hálfleik og þannig enduðu leikar.

Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, spilaði allan leikinn fyrir Al Arabi og stjórnaði umferðinni á miðsvæðinu.

Al Arabi er eftir þennan flotta sigur komið með 12 stig í áttunda sæti deildarinnar. Heimir Hallgrímsson er auðvitað þjálfari liðsins og með honum í starfsteyminu eru Bjarki Már Ólafsson og Freyr Alexandersson.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner