Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 27. desember 2020 21:21
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mynd: Raul Jimenez mætti aftur á Molineux
Raul Jimenez.
Raul Jimenez.
Mynd: Getty Images
Mexíkóski sóknarmaðurinn Raul Jimenez mætti í kvöld á fyrsta leik sinn hjá Wolves frá því að hann höfuðkúpubrotnaði í jafntefli gegn Arsenal í lok nóvember. Hann var mættur á Molineux til að sjá liðsfélaga sína spila gegn Tottenham.

Jimenez þurfti að fara beinustu leið á sjúkrahús eftir skallaeinvígi við David Luiz í síðasta mánuði.

Ekki er vitað hvenær hinn 29 ára gamli Jimenez mun snúa aftur inn á völlinn en það var mjög gott að sjá hann í stúkunni í kvöld.

Wolves var að spila við Tottenham og endaði leikurinn 1-1. Wolves skoraði jöfnunarmark seint í leiknum.

Hér að neðan má sjá mynd af Jimenez í stúkunni í kvöld.


Athugasemdir
banner
banner
banner