Rússneska fótboltaþjálfaranum Leonid Slutsky er greinilega margt til lista lagt.
Slutsky ákvað óvænt að syngja sína útgáfu af jólalaginu 'All I Want for Christmas is You' sem söngkonan Mariah Carey gerði vinsælt á sínum tíma.
Slutsky er þjálfari Rubin Kazan í rússnesku úrvalsdeildinni en félagið gaf út myndband af honum þar sem hann flytur lagið. Leikmannahópur Kazan tekur einnig þátt í myndbandinu sem er mjög skemmtilegt.
Myndbandið skemmtilega má sjá hér að neðan og þar fyrir neðan má sjá upprunalegu útgáfuna.
Athugasemdir