Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 27. desember 2020 13:40
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu atvikið: Mark Burnley ekki dæmt gilt
Mynd: Getty Images
Leeds United er 1-0 yfir gegn Burnley þessa stundina þökk sé marki sem Patrick Bamford skoraði úr vítaspyrnu sem hann vann sjálfur.

Bamford gerði frábærlega að leika á Nick Pope og láta hann brjóta á sér. Hann steig á punktinn og skoraði af ótrúlega miklu öryggi, með óverjandi skoti í samskeytin.

Skömmu síðar héldu leikmenn Burnley að þeir hefðu jafnað en Robert Jones dómari var snöggur að dæma markið af.

Hann dæmdi Ben Mee brotlegan í aðdraganda marksins, en ákvörðunin virðist vera kolröng þegar atvikið er skoðað.

Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan en Mee virðist alls ekki brotlegur. Ef einhver virðist vera brotlegur þá er það Illan Meslier markvörður Leeds.


Athugasemdir
banner
banner