Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mán 28. janúar 2019 21:32
Ívan Guðjón Baldursson
Eysteinn Húni: Munum styrkja liðið fyrir mót
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Keflvíkingar áttu þokkalegan leik gegn FH í Fótbolta.net mótinu í dag en töpuðu með einu marki gegn engu.

Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Keflvíkinga var ánægður með frammistöðu sinna manna og telur reynslumun liðanna hafa ráðið úrslitum.

„Við vorum að spila við lið með reynslumikla leikmenn og það er aðalmunurinn á milli liðanna, þessi litlu trikk sem reynslumennirnir hafa og við erum að reyna að koma inn hjá okkar mönnum," sagði Eysteinn að leikslokum.

„Við erum að vinna í að byggja rútínerað lið og förum yfir grunnatriðin aftur og aftur. Þau verða að vera á hreinu áður en menn fara í eitthvað dýpra."

Eysteinn er með ungt lið í höndunum og ætlar að styrkja hópinn fyrir komandi tímabil. Hann lofar því þó að uppaldir leikmenn muni fá sín tækifæri.

„Þeir fá klárlega sénsinn. Sumir munu grípa hann, sumir ekki. Við munum styrkja liðið eitthvað og reyna að hafa þar leikmenn sem koma með reynslu inn og gera ungu leikmennina betri."
Athugasemdir
banner
banner
banner