Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 28. janúar 2023 21:52
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Lookman með sjöunda markið í fjórum leikjum
Mynd: EPA

Atalanta 2 - 0 Sampdoria
1-0 Joakim Mæhle ('42)
2-0 Ademola Lookman ('57)


Atalanta tók á móti fallbaráttuliði Sampdoria í síðasta leik dagsins í ítalska boltanum.

Fyrri hálfleikurinn var fjörugur þar sem liðin skiptust á að eiga færi en það var danski vængbakvörðurinn Joakim Mæhle sem kom heimamönnum yfir undir lok hálfleiksins.

Gæðamunurinn kom meira í ljós er leið á leikinn og tvöfaldaði Ademola Lookman forystu Atalanta í síðari hálfleik. Lookman er funheitur og er búinn að skora sjö mörk og gefa tvær stoðsendingar í síðustu fjórum leikjum sínum með Atalanta.

Atalanta er í fjórða sæti eftir sigurinn, með 38 stig eftir 20 umferðir. Sampdoria er í næstneðsta sæti með 9 stig.


Athugasemdir
banner
banner