Það var tvíhöfði hjá íslenska A-landsliðinu og U21 landsliðinu. A-landsliðið tapaði fyrir Armeníu á meðan U21 landsliðið tapaði fyrir Danmörku.
Á miðvikudaginn verður síðast tvíhöfðinn í bili þar sem A-landsliðið mætir Liechtenstein og U21 landsliðið mætir Frakklandi.
Hér að neðan má sjá það helsta úr umræðunni á Twitter í dag í boði Vodafone.
Með því að fylgja Fótbolta.net á Twitter færðu fréttaveitu þar sem inn rúlla nýjustu fréttirnar úr boltanum. Notið kassamerkið #fotboltinet fyrir boltaumræðuna á Twitter. Heimasvæði Fótbolta.net á Twitter er á @Fotboltinet.
Rangstaða í aðdraganda að marki Dana? #fotboltinet #EMstofan #U21EURO #ISLDEN pic.twitter.com/pRl0k8ym4j
— Haraldur Ingólfsson (@Halli_Ingolfs) March 28, 2021
Að Valgeir Valgeirsson sé ekki í u21 hópnum er held ég mesta þvæla aldarinnar. Á bara eftir að koma betur og betur í ljós á næstu árum hvað sú ákvörðun var hræðilega léleg
— Sigurđur Gìsli (@SigurdurGisli) March 28, 2021
Hvar er Valgeir Lundal? Hann ætti með réttu að eiga aðra hvora Bakvarðarstöðuna skuldlaust.
— Hrafnkell Freyr Ágústsson (@hrafnkellfreyr) March 28, 2021
Sjá mun á þjóðarleikvangi Armeníu 1998 vs 2021 risastökk tekin. Þeir mættir í framtíðina. Við heima ljós árum eftir að fylgja nútímanum. #fotboltinet
— magnus bodvarsson (@zicknut) March 28, 2021
Klárt að @grjotze er búinn að vinna sig upp í sem uppáhald þjóðarinnar að hann er settur á lýsingu hjá landsliðinu. Hrikalega sáttur með það #fotboltinet
— magnus bodvarsson (@zicknut) March 28, 2021
Það er ljóst að leikmenn Armeníu voru ekki valdir í landsliðið fyrir sönghæfileika sína #fotboltinet #tolfan #armisl
— Gudmundur Gudbergsson (@mummigud) March 28, 2021
Átta mig á að JDB er ekki uppáhald allra og ekki mikill markaskorari en djöfull sem ég fíla vinnusemina í drengnum. Hentar fullkomlega í þetta ísl lið. #fotboltinet #fyririsland #ÁframÍsland
— Matti Matt (@mattimatt) March 28, 2021
Djöfull er þetta fokking leiðinlegur leikur. Vá hvað við þurfum á Gylfa að halda #fotboltinet
— Guðmundur Auðun (@GummiAudun) March 28, 2021
Úffffff..... #fotboltinet #fyririsland #ÁframÍsland pic.twitter.com/ambpJYCxx9
— Matti Matt (@mattimatt) March 28, 2021
Viðar Örn er örugglega skellihlæjandi heima hjá sér núna
— Máni (@gunnarmani) March 28, 2021
Jesús.
— Henry Birgir (@henrybirgir) March 28, 2021
Þetta er sama tilfinning og þegar maður horfði á ísl liðið í gamla daga, áður en við gátum eitthvað. Stanslausar vonir og endalaus vonbrigði #fotboltinet #fyririsland #ÁframÍsland
— Matti Matt (@mattimatt) March 28, 2021
Hvað er annars game planið hjá okkar mönnum í dag?
— Pétur Örn Gíslason (@peturgisla) March 28, 2021
Þetta er eiginlega sorglegt að sjá, við erum miklu betri en þetta.#Fotboltinet
Allir með þær kröfur að Ísland eigi að fara á öll stórmót og eru síðan flengdir á móti Armeníu. Ísland verður bara að sætta sig við það að við getum ekki rassgat #fotboltinet
— Arnar (@Arnar_th) March 28, 2021
Átakanlega lélegt #fotboltinet
— Gudmundur Brynjolfss (@GBRYNJOLFSSON) March 28, 2021
Karlalandsliðið án Gylfa er eins og Sean Lennon, sonur Johns Lennon og Yoko. Erfði útlit föður síns en tónlistarhæfileika móður sinnar. #ARMISL #fotboltinet
— Steingrímur Sævarr Ólafsson (@frettir) March 28, 2021
Vá hvað þetta landslið er andlaust. Það er þó staðfest að Gylfi Sig er besti íslenski leikmaður frá upphafi. #fotboltinet
— Gunnar Bjartur (@GunnarBjartur) March 28, 2021
Miserable night, looks like a squad caught between two ideas and two generations right now. The transition was never going to be easy, let's be honest, but results like this weren't expected #fotboltinet
— Lucas Arnold (@FotboltiLucas) March 28, 2021
Það eru bara 5 dagar og 20 klukkutímar í næsta leik Leeds United. #mot
— Máni Pétursson (@Manipeturs) March 28, 2021
Þetta er svo vont #armisl pic.twitter.com/u4OFGVlLvj
— Bára K. Rúnarsdóttir (@bararunars) March 28, 2021
Er allt í einu farinn að hafa áhyggjur af Liechtenstein-leiknum. Þrot.
— Henry Birgir (@henrybirgir) March 28, 2021