Tottenham hefur opnað æfingasvæði sitt fyrir leikmenn til að hefja æfingar að nýju.
Tottenham ætlar að vera með nokkra æfingavelli opna en einungis einn leikmaður má æfa á hverjum velli í einu.
Þá verða takmarkanir á því hversu margir leikmenn mega mæta á æfingasvæðið á hverjum degi.
Tottenham ætlar að vera með nokkra æfingavelli opna en einungis einn leikmaður má æfa á hverjum velli í einu.
Þá verða takmarkanir á því hversu margir leikmenn mega mæta á æfingasvæðið á hverjum degi.
Leikmenn mæta klæddir og tilbúnir á æfingu og fara beint heim eftir æfinguna.
Arsenal tilkynnti einnig í gær að æfingar væru hafnar hjá liðinu en vonir standa til að hægt verði að byrja að spila í ensku úrvalsdeildinni fyrir luktum dyrum í júní.
Athugasemdir