Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 28. apríl 2021 17:30
Magnús Már Einarsson
Bruno Fernandes: Ég vil stýra Man Utd einn daginn
Mynd: Getty Images
Bruno Fernandes, miðjumaður Manchester United, segist vilja stýra liðinu einn daginn.

Hinn 26 ára gamli Bruno hefur leikið frábærlega með United síðan hann kom frá Sporting Lisabon í janúar 2020 en hugur hans leitar út í þjálfun.

„Ég er að reyna að njóta fótboltans. Ég held að ég vilji vera þjálfari," sagði Bruno.

„Auðvitað væri stærsta félagið sem ég gæti þjálfað Manchester United og ég yrði ánægður með það."

„Ég segi þessi orð núna svo ef fólk sér þessi orð í framtíðinni þá geta stuðningsmenn sett pressu á mig að verða þjálfari."

Athugasemdir
banner
banner