Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 28. apríl 2021 20:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Dagný spilaði allan leikinn í tapi gegn Arsenal
Dagný Brynjarsdóttir.
Dagný Brynjarsdóttir.
Mynd: Getty Images
Dagný Brynjarsdóttir spilaði allan leikinn í kvöld þegar West Ham heimsótti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni.

Hollenska markadrottningin Vivianne Miedema kom Arsenal í forystu eftir rétt rúmlega hálftíma leik og var staðan 1-0 í hálfleik. Á 78. mínútu skoraði Kim Little annað mark Arsenal og þar við sat.

Dagný hefur komið öflug inn í lið West Ham en verkefnið í kvöld var aðeins of strembið fyrir hennar lið.

Arsenal er með frábært lið og er í þriðja sæti deildarinnar, sjö stigum á eftir toppliði Chelsea. West Ham er í tíunda sæti, tveimur stigum frá fallsæti.

Fyrr í kvöld skildu nágrannaliðin Aston Villa og Birmingham jöfn í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner