Heimild: Vísir
Hólmfríður Magnúsdóttir ætlar að spila með Selfossi í Pepsi Max-deild kvenna í sumar en frá þessu er greint á Vísi.
Hólmfríður er fædd 1984 og hefur átt farsælan tuttugu ára feril í meistaraflokki.
Í síðasta mánuði greindi hún frá því að hún væri búin að leggja skóna á hilluna en henni hefur snúist hugur.
Síðustu tvö tímabil á Íslandi hefur nú leikið með Selfyssingum og átti stóran þátt í að liðið varð bikarmeistari í fyrsta sinn á síðasta ári.
Pepsi Max-deild kvenna fer af stað í næstu viku en Selfoss hafnaði í fjórða sæti í deildinni í fyrra.
Athugasemdir