Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 28. apríl 2021 10:30
Magnús Már Einarsson
Jesse March að taka við RB Leipzig
Mynd: Getty Images
Jesse Marsch verður næsti þjálfari RB Leipzig samkvæmt fréttum frá Þýskalandi.

Julian Nagelsmann er að hætta með RB Leipzig til að taka við Bayern Munchen af Hansi Flick. Hansi Flick verður líklega næsti landsliðsþjálfari Þýskalands.

Marsch hefur þjálfað RB Salzburg í Austurríki frá því árið 2019 og vakið athygli þar.

Hann mun nú taka við systurfélaginu RB Leipzig í sumar og hoppa á stærra svið í Þýskalandi.

Marsch er 47 ára gamall en hann kemur frá Bandaríkjunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner