Léttir og Hvíti riddarinn gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust á Hertz-vellinum í 4. deild karla í kvöld.
Bæði lið höfðu byrjað riðilinn afar vel og unnið fyrstu tvo leikina en það var stál í stál í Breiðholtinu í kvöld.
Liðin skiptu stigunum sín á milli og eru því bæði með 7 stig eftir þrjá leiki en Hvíti riddarinn með betri markatölu og því á toppnum.
Tveir leikir fara fram í D-riðlinum á morgun en Kormákur/Hvöt og Úlfarnir mætast á Blönduósi á meðan Samherjar spila við Vatnaliljur.
Athugasemdir