Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. maí 2021 23:30
Brynjar Ingi Erluson
Ajax vill kaupa Bergwijn af Tottenham
Steven Bergwijn gæti farið aftur til Hollands
Steven Bergwijn gæti farið aftur til Hollands
Mynd: Getty Images
Hollenska félagið Ajax vill festa kaup á Steven Bergwijn, leikmanni Tottenham Hotspur, í sumar en hollenski blaðamaðurinn Mike Verweij greinir frá þessu.

Bergwijn kom til Tottenham frá PSV í janúar á síðasta ári og átti ágætis innkomu.

Það var búist við miklu frá honum fyrir leiktíðina sem var að klárast en hann skoraði aðeins eitt mark og lagði upp sjö í 35 leikjum í öllum keppnum.

Samkvæmt Mike Verweij er Ajax áhugasamt um Bergwijn og er tilbúið að borga 15 milljónir evra fyrir hann en Tottenham vill þó fá 25 milljónir evra.

Félögin eru í viðræðum en Ajax mun reyna af bestu getu til að koma honum aftur í hollenska boltann.

Bergwijn ólst upp hjá Ajax áður en hann skipti yfir í PSV ungur að árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner