Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. maí 2021 10:46
Ívan Guðjón Baldursson
Allegri búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Juve
Mynd: Getty Images
Massimiliano Allegri er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Ítalíumeistara Juventus. Fabrizio Romano greinir frá þessu.

Hinn 53 ára gamli Allegri hefur verið afar eftirsóttur undanfarin ár en hann hefur ekki tekið við neinu þjálfarastarfi síðan hann rúllaði upp ítalska boltanum með Juventus frá 2014 til 2019.

Romano segir að fregnirnar verði staðfestar á næstu klukkutímum.

Allegri var í viðræðum við Real Madrid en þar ríkti of mikil óvissa. Hann greip því tækifærið þegar Juve kom bankandi og stökk aftur um borð.

Þjálfarinn mun fá gríðarlega háan launapakka hjá Juve, eða 9 milljónir evra á ári eftir skatt.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner