Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   fös 28. maí 2021 22:05
Anton Freyr Jónsson
Ási Arnars: Ákveðið að kýla á þetta
Lengjudeildin
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis.
Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir og Fram mættust í hávaða roki á Extravellinum í Grafarvogi fyrr í kvöld og var Albert Hafsteinsson var hetja Framara en hann skoraði eina mark leiksins.

„Við erum sársvekktir að tapa hér á heimavelli. Þetta var hörkuleikur við erfiðar aðstæður. Þetta var bara barningur og barátta. Það voru moment sem hefðu getað dottið með okkur og hefðu getað dottið með þeim. Því miður var það þannig að það var eitt moment sem datt með þeim og ekkert með okkur og það var niðurstaðan." voru fyrstu viðbrögð Ásmundar Arnars þjálfara Fjölnis

Lestu um leikinn: Fjölnir 0 -  1 Fram

„Vindurinn stjórnaði auðvitað ferðinni, þeir sóttu meira á okkur í fyrri og við meira á þá í seinni og það var kannski það sem réði þróununni meira en eitthvað annað."

„Mér fannst við fá fleiri möguleika ef eitthvað var en þetta var bara svona fyrir hvern myndi þetta detta og það gerðist bara svona."

Ási Arnars var spurður út í aðdraganda leiksins en talaði Pétur Guðmundsson dómari leiksins eitthvað við Framara hvort liðið vildi spila leikinn eða fresta en Kórdrengjum - Þrótti Reykjavík var frestað en hann átti að fara fram á sama tíma.

„Það var auðvitað samtal fyrir leik og menn voru svona að velta fyrir sér hvað ætti að gera. Þetta var kannski bara pínu erfið ákvörðun hvað væri rétt að gera í stöðunni. Þetta leit ágætlega svona á þessum tímapunkti sem við vorum að ræða saman og það var ákveðið að láta vaða á þetta."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner