fös 28. maí 2021 21:09
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía skoraði sjö gegn San Marínó
Matteo Politano fagnar hér ásamt liðsfélögum sínum
Matteo Politano fagnar hér ásamt liðsfélögum sínum
Mynd: EPA
Italy 7 - 0 San Marino
1-0 Federico Bernardeschi ('32 )
2-0 Gianmarco Ferrari ('34 )
3-0 Matteo Politano ('49 )
4-0 Andrea Belotti ('67 )
5-0 Matteo Pessina ('75 )
6-0 Matteo Politano ('77 )
7-0 Matteo Pessina ('87 )

Undirbúningur ítalska landsliðsins er hafinn fyrir Evrópumótið í sumar en Matteo Politano og Matteo Pessina skoruðu báðir tvívegis í 7-0 sigri á San Marínó í æfingaleik í kvöld.

Það tók dágóðan tíma fyrir ítalska liðið að brjóta varnarmúr San Marínó niður en fyrsta markið kom ekki fyrr en eftir hálftímaleik.

Federico Bernardeschi gerði markið og tveimur mínútum síðar skoraði varnarmaðurinn, Gianmarco Ferrari.

Ítalska liðið bætti við fimm mörkum í síðari hálfleiknum þar sem Politano skoraði í tvígang og nafni hans Matteo Pessina gerði slíkt hið sama. Andrea Belotti komst einnig á blað.

Lokatölur 7-0. Næsti æfingaleikur Ítalíu er gegn Tékklandi þann 4. júní áður en liðið heldur á EM.
Athugasemdir
banner
banner
banner