Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 28. maí 2021 19:09
Brynjar Ingi Erluson
Kante og Mendy verða með á morgun
N'Golo Kante verður með Chelsea á morgun
N'Golo Kante verður með Chelsea á morgun
Mynd: EPA
Edouard Mendy og N'Golo Kante eru klárir í slaginn fyrir leik Chelsea og Manchester City á morgun en Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea, staðfesti þessar fregnir á blaðamannafundi í kvöld.

Kante fór meiddur af velli gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni fyrr í þessum mánuði og þá meiddist Mendy eftir að hann lenti á stönginni í lokaleiknum gegn Aston Villa.

Allir leikmenn Chelsea eru klárir í slaginn gegn Manchester City er liðin mætast í úrslitaleik Meistaradeildairnnar á morgun og er Tuchel ánægður með þær fréttir.

„Þetta eru bestu fréttir í heimi, engin meiðsli og vonandi verður það þannig þangað til eftir æfinguna á morgun," sagði Tuchel í kvöld.

„Ég myndi segja að ég treysti á alla þegar þetta snýst um hungur. Það er alltaf þannig þegar þú ert kominn í stærsta leikinn að þá snýst þetta um hversu mikið þú vilt þetta. Við erum mjög einbeittir og höfum verið afar agaðir í þessari viku."

„Mér finnst við vera með mikið sjálfstraust sem er mjög svo jákvætt og gott að fara inn í úrslitaleikinn með það hugarfar. Við höfum æft tvisvar í London og svo einu sinni í gær sem var taktísk æfing."

„Í dag var síðasta æfingin til að fara yfir helstu smáatriðin og fá tilfinninguna fyrir þessu. Þetta var góð æfing fyrir leikmenn til að komast á leikvanginn. Snerta völlinn, finna lyktina og finna þessa stund færast nær okkur,"
sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner