Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 28. maí 2021 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
Líkleg byrjunarlið Man City og Chelsea: Sterling og Havertz á bekk
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
UEFA.com hefur sett saman líkleg byrjunarlið úrslitaleiks Meistaradeildarinnar, þar sem Englandsmeistarar Manchester City mæta Chelsea í Porto annað kvöld klukkan 19:00.

Liðsvalið verður ekki auðvelt fyrir Pep Guardiola og Thomas Tuchel sem eru með aragrúa af stórstjörnum í leikmannahópunum.

Enginn leikmaður í hóp City er meiddur á meðan Edouard Mendy og N'Golo Kante eru tæpir í liði Chelsea. Þeir munu þó líklegast spila.

UEFA býst við því að Kyle Walker, John Stones, Oleksandr Zinchenko, Fernandinho og Riyad Mahrez verði allir í byrjunarliði City á kostnað Joao Cancelo, Aymeric Laporte, Benjamin Mendy, Rodri, Raheem Sterling og Sergio Agüero.

Þá er búist við því að Jorginho byrji ásamt Christian Pulisic í liði Chelsea og Kai Havertz verði á bekknum.

Man City (4-3-3): Ederson; Walker, Stones, Dias, Zinchenko; Bernardo Silva, Fernandinho, Gündoğan; Mahrez, De Bruyne, Foden
Meðal varamanna: Cancelo, Laporte, Aké, Mendy, Rodri, Torres, Sterling, Jesus, Aguero

Chelsea (3-4-3): Mendy; Christensen, Thiago Silva, Rüdiger; Azpilicueta, Jorginho, Kanté, Chilwell; Pulišić, Werner, Mount
Meðal varamanna: Kepa, Alonso, Zouma, James, Kovacic, Gilmour, Ziyech, Havertz, Hudson-Odoi, Abraham, Giroud
Athugasemdir
banner
banner
banner