Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 28. maí 2021 16:20
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Tuchel hermdi eftir Guardiola
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel og lærisveinar hans í Chelsea virðast léttir í lund fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Manchester City.

Báðir leikmannahópar eru mættir til Porto þar sem úrslitaleikurinn fer fram og fylgjast fjölmiðlamenn grannt með gangi mála.

The Sun er með menn í Porto sem náðu skemmtilegu myndbandi af Tuchel með nokkrum leikmönnum.

Í myndbandinu virðist Tuchel herma eftir látbrögðum Pep Guardiola, knattspyrnustjóra Man City, áður en hann tekur eftir að hann er í mynd og veifar myndatökumönnunum.

Úrslitaleikurinn hefst klukkan 19:00 annað kvöld.


Athugasemdir
banner
banner