Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   fös 28. maí 2021 14:30
Elvar Geir Magnússon
Niko gerir nýjan þriggja ára samning við Víking
Nikolaj Hansen í leik gegn Breiðabliki nýlega.
Nikolaj Hansen í leik gegn Breiðabliki nýlega.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski sóknarmaðurinn Nikolaj Hansen hefur gert nýjan þriggja ára samning við Víking Reykjavík.

Niko, eins og hann er kallaður, kom til Víkings frá Val árið 2017 og hefur verið gríðarlega mikilvægur liðinu. Hann á að baki 94 leiki og 28 mörk á Íslandi.

„Niko var lykilmaður þegar Víkingar urðu bikarmeistarar og skoraði í öllum umferðum keppninnar ef frá er talinn úrslitaleikurinn. Hann hefur væntingar til framtíðarinnar og trúir því að á þeim þremur árum sem samningurinn nær til muni góðir hlutir gerast í Fossvoginum," segir í tilkynningu Víkinga.

„Niko hefur skorað fjögur mörk í fyrstu sex leikjum Pepsi Max deildarinnar og hefur þannig átt stóran þátt í mjög ásættanlegri byrjun Víkinga í sumar."


Athugasemdir
banner
banner