Luis Suarez, framherji Atletico Madrid, gerði sér lítið fyrir og vann La Liga deildina á Spáni með félaginu.
Barcelona taldi sig ekki geta notað Suarez meira og ákvað félagið að selja hann á klink til keppinauta sína í Atletico Madrid, ákvörðun sem fáir skildu.
Það átti heldur betur eftir að koma í bakið á Börsungum en Luis Suarez og félagar í Atletico unnu þann stóra á Spáni á þessu tímabili. Suarez átti mjög gott tímabil og skoraði 21 deildarmark.
„Ég fékk engar hamingjuóskir frá neinum úr stjórn Barcelona. En ég senti þeim næstum því mynd! sagði Suarez léttur.
Þá þakkaði Suarez Atletico Madrid fyrir að taka sig og hafa trú á sér eftir að Barcelona sparkaði honum burt. Frábært tímabil að baki og áætlunarverk Suarez gekk fullkomnlega upp.
Luis Suarez was out for revenge 📸🏆 pic.twitter.com/R6ThXyAVzO
— ESPN FC (@ESPNFC) May 27, 2021
Athugasemdir