Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. maí 2021 18:30
Elvar Geir Magnússon
Þrír leikmenn Man City eiga afmæli daginn fyrir úrslitaleikinn
Afmælisbörnin Kyle Walker, John Stones og Phil Foden. Ásamt Raheem Sterling.
Afmælisbörnin Kyle Walker, John Stones og Phil Foden. Ásamt Raheem Sterling.
Mynd: EPA
Á laugardagskvöld klukkan 19:00 er komið að úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, enskum úrslitaleik Manchester City og Chelsea sem fram fer á Drekavöllum í Portúgal.

Þrír leikmenn Manchester City halda uppá afmæli sitt í Portúgal í dag, degi áður en úrslitaleikurinn fer fram.

Það eru þeir Phil Foden (21), Kyle Walker (31) og John Stones (27).

Á meðfylgjandi mynd má sjá þá saman síðasta sunnudag þegar Manchester City fékk Englandsmeistarabikarinn í hendurnar.

Það verður engin afmælisveisla í kvöld en þeir geta bætt upp fyrir það annað kvöld ef þeir fá bestu afmælisgjöf sem þeir geta hugsað sér.
Athugasemdir
banner
banner
banner