Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 28. maí 2022 16:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fjölskyldur leikmanna fá ekki að fagna með þeim
Jordan Henderson fyrirliði Liverpool ásamt föður sínum Brian
Jordan Henderson fyrirliði Liverpool ásamt föður sínum Brian
Mynd: Getty Images

Það er mikil reiði hjá leikmönnum Liverpool eftir að í ljós kom að UEFA hefur bannað fjölskyldum liðsins að fara inná völlinn eftir leikinn og fagna með þeim ef þeir vinna titilinn í kvöld.


Liverpool mætir Real Madrid í úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld en liðið hefur harma að hefna eftir tap fyrir spænska liðinu fyrir fjórum árum.

Ári síðar fór liðið aftur í úrslit og hafði sigur úr bítum gegn Tottenham. Þá fögnuðu þeir vel og innilega eftir leikinn ásamt fjölskyldum sínum á vellinum í Kiev.

Það er ekki í boði í kvöld en UEFA greinir frá því að það sé að öryggisástæðum. Þá eru fjölskyldur leikmannana svekkt með að fá alltof fáa miða á leikinn þar sem UEFA gaf öðrum stuðningsmönnum betra tækifæri á að ná í miða.


Athugasemdir
banner
banner
banner