Það er hörkuleikur á dagskrá klukkan 14:00 í dag þegar Senegal og Kólumbía mætast í lokaleik sínum í H-riðli, bæði lið eiga möguleika á að komast áfram.
Selegal dugir jafntefli í dag eftir að hafa sigrað Pólland og gert jafntefli við Japan. Kólumbía sigraði Pólland í síðasta leik og munu sækja til sigurs í dag. Riðillinn er galopinn og það er til mikils að vinna.
Senegal gerir þrjár breytingar á sínu lið og Cheikhou Kouyate, leikmaður West Ham einn þeirra sem kemur inn í byrjunarliðið.
Kólumbía gerir tvær breytingar á sínu liði, Carlos Sanchez sem var rekinn af velli eftir einungis fimm mínútur í opnunarleik liðsins er kominn aftur á miðjuna.
Senegal
Ndiaye; Koulibaly, Sabaly, Gassama, Gana, Sane, Kouyate, Mane, Ismaila, Niang, Keita Balde
Kólumbía
Ospina; Arias, Mina, Mojica, D. Sanchez, C. Sanchez, James, Cuadrado, Uribe, Quintero, Falcao
Athugasemdir