Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. júní 2020 12:46
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arnór Sveinn getur spilað með KR í kvöld
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnór Sveinn Aðalsteinsson er klár í slaginn fyrir leik KR gegn ÍA í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Þetta kemur fram á heimasíðu KR.

Arnór fór meiddur af velli gegn Val í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar og hefur verið fjarri góðu gamni síðan þá.

Arnór er hluti af aðalmiðvarðarteymi KR. Finnur Tómas Pálmason, sem er félagi Arnórs í hjarta varnarinnar hjá Íslandsmeisturunum, er enn meiddur og getur ekki spilað með í kvöld.

Líklegt er að Arnór Sveinni spili í miðverði með Arnóri Bjarka Jósepssyni.

Leikir kvöldsins:
19:15 HK-Valur (Kórinn)
19:15 ÍA-KR (Norðurálsvöllurinn - Stöð 2 Sport)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner