Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 28. júní 2020 14:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Arteta: Gullið tækifæri til að vinna titil
Mikel Arteta.
Mikel Arteta.
Mynd: Getty Images
„Ég er mjög ánægður. Það er erfitt að koma hingað og ná í sigur," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir að Arsenal tryggði sér farseðil í undanúrslit enska bikarsins.

Arsenal vann mjög dramatískan sigur á Sheffield United. Dani Ceballos skoraði sigurmarkið í uppbótartíma stuttu eftir að David McGoldrick jafnaði fyrir Sheffield United.

„Ég er mjög ánægður með viðhorfið og frammistöðu leikmanna. Þetta er gullið tækifæri fyrir okkur til að vinna titil og spila í Evrópukeppni á næstu leiktíð. Ég vil þakka ensku úrvalsdeildinni fyrir það að við séum að spila á þriggja daga fresti. Við höldum áfram á miðvikudaginn."

„Ég vissi að Sheffield United myndi eiga sín augnablik. Þeir eru svo góðir í sínu leikplani og að setja pressu á andstæðinga sína. Við fengum mark á okkur úr löngu innkasti sem erfitt er að verjast, en við náðum að vinna leikinn."

Arsenal er komið í undanúrslitin eins og Manchester United. Síðar í dag skýrist það hvaða tvö önnur lið fara í undanúrslitin.

Þeir leikir sem eru eftir í dag:
15:00 Leicester - Chelsea (Stöð 2 Sport 2)
17:30 Newcastle - Man City (Stöð 2 Sport 2)
Athugasemdir
banner
banner
banner