Arthur er að yfirgefa Barcelona og að ganga í raðir Ítalíumeistara Juventus. Hann er mættur til Tórínó þar sem hann mun gangast undir læknisskoðun í dag.
Hér að neðan má sjá myndband af því þegar Arthur kom út af flugvellinum í Tórínó.
Arthur gekk til liðs við Barcelona frá Gremio í heimalandi sínu, Brasilíu, árið 2018. Hann stoppar ekki lengi í Katalóníu.
Miralem Pjanic mun fara í hina áttina til Barcelona. Juventus borgar 10 milljónir evra fyrir Arthur og sendir Pjanic í hina áttina. Arthur er 23 ára gamall og Pjanic er þrítugur.
Arthur and Miralem Pjanic will have both medicals tomorrow. Arthur will join Juventus, Pjanic will join Barça. Swap deal concluded, also €10M to Barcelona as part of the agreement - official soon. Here we go confirmed 🇧🇷🇧🇦 #transfers #Juventus #Barcelona
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 27, 2020
Athugasemdir