Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 28. júní 2020 13:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ertu með Hilmar Árna og aðra Stjörnumenn í þínu liði?
Hilmar Árni er gríðarlega vinsæll í Draumaliðsdeildinni.
Hilmar Árni er gríðarlega vinsæll í Draumaliðsdeildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Eyjabiti
Fimm leikir verða í þessari umferð, og næstu umferðum, Draumaliðsdeildar Eyjabita eftir að leik Stjörnunnar og KA var frestað eftir að kórónuveirusmit greindist hjá leikmanni Stjörnunnar.

Næstu þremur leikjum Stjörnunnar í Pepsi Max-deildinni hefur verið frestað vegna smits í liðinu. Því eru engin stig fyrir leikmenn Stjörnunnar og andstæðinga þeirra í næstu leikjum í Draumaliðsdeild Eyjabita.

Leikir Stjörnunnar sem hefur verið frestað:
28. júní: Stjarn­an - KA
5. júlí: FH - Stjarn­an
9. júlí: Stjarn­an - KR

Því er þetta líklega rétti tíminn til að gera breytingar á liði sínu í Draumaliðsdeildinni. Hilmar Árni Halldórsson, leikmaður Stjörnunnar, er vinsælasti leikmaðurinn í Draumaliðsdeildinni og því kannski sniðugt að skipta honum, sem og öðrum Stjörnumönnum, út næstu þrjár umferðir.

Fimmta árið í röð er harðfiskvinnslan Eyjabiti aðalstyrktaraðili Draumaliðdeildarinnar í Pepsi Max-deild karla. Draumaliðsdeildin er rekin af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár en þetta er níunda árið í röð sem keppt er í Draumaliðsdeildinni.

Markaðurinn í Draumaliðsdeildinni lokar í dag klukkan 18:15.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Leikir umferðarinnar:

sunnudagur 28. júní
19:15 HK-Valur (Kórinn)
19:15 ÍA-KR (Norðurálsvöllurinn)

mánudagur 29. júní
19:15 Breiðablik-Fjölnir (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Fylkir-Grótta (Würth völlurinn)

Er kominn tími á að nota Wildcard?
Ein breyting er að venju leyfileg á milli umferða en hægt er að gera fleiri breytingar á liði sínu án þess að missa stig með því að nota „wildcard" sem nota má einu sinni yfir tímabilið.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Ekki gleyma Draumaliðsdeild Eyjabita!
Mundu að gera breytingar á þínu liði í Draumaliðsdeild Eyjabita. Hægt er að skrá sig í allt sumar. Markaðurinn lokar klukkutíma fyrir fyrsta leik umferðarinnar.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner