Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. júní 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mario Götze á leið til Atletico Madrid?
Mario Götze er á förum frá Dortmund.
Mario Götze er á förum frá Dortmund.
Mynd: Getty Images
Mario Götze verður samningslaus í næstu viku og spurning hvert næsta skref hans verður.

Götze hefur verið orðaður við félög í ítölsku úrvalsdeildinni, en Bild í Þýskalandi segir frá því að Atletico Madrid sé að íhuga að gera honum tilboð.

Ferill Mario Götze byrjaði frábærlega hjá Borussia Dortmund en hann hefur verið á niðurleið alveg frá því að hann gekk í raðir Bayern München árið 2013. Götze kom aftur til Dortmund fyrir fjórum árum, en það hefur ekki gengið sem skyldi hjá honum.

Á þessu tímabili kom 28 ára gamli sóknarsinnaði miðjumaðurinn við sögu í 15 deildarleikjum með Dortmund. Þýska úrvalsdeildin kláraðist í gær, en spænska úrvalsdeildin er enn í fullum gangi.

Atletico Madrid er í þriðja sæti spænsku úrvalsdeildarinnar sem stendur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner