Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 28. júní 2020 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tevez er opinn fyrir því að snúa aftur til West Ham
Tevez fagnar marki með West Ham.
Tevez fagnar marki með West Ham.
Mynd: Getty Images
Hinn 36 ára gamli Carlos Tevez útilokar það ekki að snúa aftur til West Ham.

Tevez er að renna út á samningi hjá Boca Juniors í Argentínu, en hann ætlar að vera þar áfram næstu sex mánuðina. Svo útilokar hann ekki að fara aftur til West Ham ef það er möguleiki.

„Ef ég væri aftur til Evrópu þá myndi ég fara til West Ham. Ég gæti líka farið aftur til Corinthians," sagði Tevez í samtali við Radio La Red.

Tevez segist ætla að gefa allan peninginn sem hann fær í laun hjá Boca í góðgerðarmál.

Tevez gekk í raðir West Ham árið 2006 og fór til Manchester United árið eftir. Hann spilaði einnig með Manchester City á Englandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner