Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 28. júní 2020 15:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Guðlaugur Victor fékk rautt í sigri gegn Stuttgart
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag fór lokaumferðin í þýsku B-deildinni fram í heild sinni. Guðlaugur Victor Pálsson og félagar hans í Darmstadt enduðu tímabilið vel.

Darmstadt heimsótti Stuttgart og vann þar góðan 3-1 sigur. Mario Gomez, fyrrum sóknarmaður þýska landsliðsins, jafnaði metin fyrir Stuttgart undir lok fyrri hálfleiks og var staðan að honum loknum jöfn, 1-1.

Darmstadt komst aftur yfir á 53. mínútu, en nokkrum mínútum síðar fékk Guðlaugur Victor að líta rautt spjald þegar hann fékk sitt annað gula spjald.

Einum færri tókst hins vegar Darmstadt að bæta við marki og klára leikinn endanlega.

Guðlaugur Victor hefur átt frábært tímabil, en hann mun byrja það næsta í banni. Darmstadt hafnar í fimmta sæti deildarinnar, en Stuttgart var búið að tryggja sig upp í þýsku úrvalsdeildina fyrir leikinn í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner