Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 28. júní 2022 22:58
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: 37 mörk í 6 leikjum
Mynd: Hanna Símonardóttir
Mynd: Hanna Símonardóttir

Það fóru sex leikir fram í 4. deildinni í kvöld og voru þrír þeirra í æsispennandi A-riðli.


Hvíti riddarinn, Skallagrímur og Árbær unnu örugga sigra og eru nánast samstíga í harðri toppbaráttu.

Hvíti riddarinn leiðir með 19 stig eftir 7 umferðir og kemur Skallagrímur í öðru sæti með 18 stig. Árbær er svo í þriðja sæti með 16 stig.

Hvíti riddarinn rúllaði yfir Reyni Hellissandi á meðan Skallagrímur lenti ekki í vandræðum gegn Herði frá Ísafirði. Árbær skoraði þá sex mörk gegn tveimur þegar Ísbjörninn kíkti í heimsókn.

Í B-riðli er KFK búið að jafna Tindastól á toppinum eftir stórsigur gegn SR. Liðin eru með 17 stig eftir 7 umferðir, fjórum stigum á undan Úlfunum sem eru í þriðja sæti eftir sigur gegn KÁ.

KFK og Tindastóll mætast í toppslag í næstu umferð.

Að lokum hafði Ýmir betur gegn KFR í D-riðli og trónir þar á toppinum með 19 stig eftir 8 umferðir. KFR er með 10 stig.

A-riðill:
Reynir H 0 - 7 Hvíti riddarinn
0-1 Eiður Andri Thorarensen ('6 )
0-2 Eiríkur Þór Bjarkason ('16 )
0-3 Eiður Andri Thorarensen ('22 )
0-4 Björgvin Heiðar Stefánsson ('51 )
0-5 Eiríkur Þór Bjarkason ('58 )
0-6 Guðbjörn Smári Birgisson ('80 )
0-7 Ísak Máni Viðarsson ('83 )

Skallagrímur 6 - 0 Hörður Í.
1-0 Sölvi Snorrason ('37 )
2-0 Davíð Hjaltason ('39, sjálfsmark)
3-0 Sölvi Snorrason ('51 )
4-0 Sölvi Snorrason ('55 )
5-0 Sergio Fuentes Jorda ('72 )
6-0 Sigurjón Logi Bergþórsson ('93)

Árbær 6 - 2 Ísbjörninn
Úrslit fengin hjá úrslit.net

B-riðill:
KFK 5 - 1 SR
1-0 Óðinn Ómarsson ('6 )
2-0 Jamal Michael Jack ('19 )
3-0 Óðinn Ómarsson ('31 )
4-0 Jamal Michael Jack ('39 )
5-0 Júlíus Óli Stefánsson ('52 )
5-1 Friðrik Þór Ólafsson ('86 )

Úlfarnir 4 - 1 KÁ
1-0 Gunnar Þór Hilmarsson ('12 , Sjálfsmark)
1-1 Aron Hólm Júlíusson ('29 )
2-1 Hilmar Þór Sólbergsson ('79 )
3-1 Jökull Steinn Ólafsson ('90 , Mark úr víti)
4-1 Gunnar Bent Helgason ('90 , Sjálfsmark)

D-riðill:
KFR 1 - 4 Ýmir
0-1 Valdimar Ármann Sigurðsson ('21 )
0-2 Andri Már Harðarson ('32 )
1-2 Bjarni Þorvaldsson ('33 )
1-3 Ólafur Örn Ploder ('55 )
1-4 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('67 )


Athugasemdir
banner
banner
banner