Danski landsliðsmaðurinn Christian Eriksen virðist vera að velta fyrir sér tilboðum frá þremur enskum félögum þessa stundina.
Greint hefur verið frá áhuga Manchester United á leikmanninum og þá vill Brentford halda honum innan félagsins eftir virkilega góða spilamennsku síðustu mánuði ensku úrvalsdeildarinnar fyrr á þessu ári.

Þriðja félagið er svo Leicester City samkvæmt heimildum The Times.
Eriksen, sem er þrítugur, verður formlega samningslaus um mánaðarmótin og því þyrftu Man Utd og Leicester ekki að greiða Brentford fyrir leikmanninn.
Athugasemdir