Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 28. júní 2022 22:20
Ívan Guðjón Baldursson
Thiago Silva vill fá Neymar til Chelsea
Neymar hefur skorað 74 mörk og átt yfir 50 stoðsendingar í 119 landsleikjum.
Neymar hefur skorað 74 mörk og átt yfir 50 stoðsendingar í 119 landsleikjum.
Mynd: Getty Images

Thiago Silva er góður vinur Neymar og þeir spiluðu saman í nokkur ár hjá Paris Saint-Germain auk þess að vera landsliðsfélagar til margra ára.


Silva er leikmaður Chelsea og segist hann vona að Neymar skipti yfir til Englands ef sögusagnir um hann eru réttar.

Greint hefur verið frá því að Neymar sé ekki í áformum PSG og gæti stórstjarnan því skipt um félag í sumar.

„Ég vona að þetta séu ekki bara sögusagnir. Ef hann er að fara frá PSG þá verður hann að koma til Chelsea. Neymar býr yfir ótrúlegum gæðum og er einn af mínum bestu vinum," sagði Silva í viðtali við Globo.

Thomas Tuchel vill ólmur styrkja leikmannahóp Chelsea í sumar og virðist þegar vera að ganga frá kaupum á Raphinha og Raheem Sterling.

Sjá einnig:
PSG ku vilja losna við Neymar


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner