Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 28. júlí 2020 19:46
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: HK rúllaði yfir Sindra
Karen setti þrennu.
Karen setti þrennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri 0 - 7 HK
0-1 María Lena Ásgeirsdóttir ('2)
0-2 María Lena Ásgeirsdóttir ('11)
0-3 Karen Sturludóttir ('37)
0-4 Karen Sturludóttir ('38)
0-5 Karen Sturludóttir ('47)
0-6 Ísabella Eva Aradóttir ('90)
0-7 María Lena Ásgeirsdóttir ('90)

HK gjörsamlega rúllaði yfir Sindra er liðin mættust í 2. deild kvenna í dag.

María Lena Ásgeirsdóttir og Karen Sturludóttir settu sitt hvora þrennuna í leiknum. Karen gerði sína á rétt rúmum tíu mínútna kafla.

Ísabella Eva Aradóttir komst einnig á blað og er HK áfram á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir sjö umferðir.

Sindri er í næstneðsta sæti með þrjú stig.
Athugasemdir
banner
banner