þri 28. júlí 2020 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Man City færist nær kaupum á Ferran Torres
Ferran Torres í leik með Valencia.
Ferran Torres í leik með Valencia.
Mynd: Getty Images
Manchester City er að færast nær kaupum á spænska kantmanninum Ferran Torres.

Þetta herma heimildir Goal og SPOX. Torres á eitt ár eftir af samningi sínum hjá Valencia og er búinn að ná samkomulagi við Man City um fimm ára samning.

City og Valencia eiga eftir að ná saman en talið er að Torres muni kosta á bilinu 27 og 36 milljónir punda.

Torres hefur hafnað fjölmörgum tilboðum um að vera áfram hjá Valencia og nokkuð ljóst er að hann mun færa sig um set í sumar.

Hann var líka orðaður við Borussia Dortmund, Manchester United og Juventus, en Pep Guardiola, stjóra Man City, tókst að sannfæra hann um að velja bláa hluta Manchester.

Hann mun líklega fylla það skarð sem Leroy Sane skilur eftir sig. Sane gekk á dögunum í raðir Bayern München í Þýskalandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner