Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 28. júlí 2022 10:24
Elvar Geir Magnússon
Blys og söngvar á æfingu hjá andstæðingum Blika
Mynd: FK Budućnost PG
Breiðablik leikur síðari leik sinn gegn Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi í forkepni Sambandsdeildarinnar ytra í kvöld. Fyrri leikur liðanna á Kópavogsvelli var ansi skrautlegur en tveimur fleiri tókst Blikum að skora tvö og fóru með 2-0 sigur af hólmi.

Leikmenn Buducnost létu öllum illum látum í leiknum og misstu algjörlega hausinn. Auk þess að tveir leikmenn fengu rautt var þjálfara þeirra vísað upp í stúku og leikmenn urðu reiðir við Damir Muminovic í lok leiksins og allt sauð uppúr, það má búast við miklum hasar í kvöld.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 18:30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og að sjálfsögðu í beinni textalýsingu á Fótbolta.net.

Hluti af stúkunni í kvöld verður lokaður en það er refsing frá UEFA vegna hegðunar áhorfenda liðsins. Félagið gerir þó allt sem hægt er til að skapa stemningu á leiknum og hefur tilkynnt að aðgangur verði ókeypis.

Það verður allt reynt hjá heimamönnum til að snúa stöðunni í einvíginu við og harðkjarna stuðningsmenn liðsins mættu með blys á síðustu æfingu fyrir leik í gær, eins og sjá má á myndböndum hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner