Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 28. ágúst 2021 08:30
Victor Pálsson
Everton hafði samband við Celtic
Mynd: Getty Images
Odsonne Edouard, leikmaður Celtic, er sagður vera á óskalista Everton fyrir lok félagaskiptagluggans.

Sky Sports greinir frá en Edouard er 23 ára gamall framherji og hefur staðið sig vel í Skotlandi.

Edouard kom til Celtic frá Paris Saint-Germain árið 2018 og hefur skorað 57 deildarmörk í 93 leikjum.

Samkvæmt Sky hefur Everton sett sig í samband við Celtic og vill fá að vita hvort leikmaðurinn sé fáanlegur.

Edouard vill sjálfur spila fyrir stærra lið og myndi vilja fara í ensku úrvalsdeildina.

Athugasemdir
banner
banner