Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. ágúst 2021 12:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson
James myndi hægja á þróun yngri leikmanna
Mynd: Getty Images
James Rodriguez hefur verið orðaður við Porto en Sérgio Conceição þjálfari portúgalska liðsins segir að það sé ekki í forgangi að fá hann til félagsins.

Luis Diaz framherji Porto hefur verið orðaður við Everton í skiptum fyrir James. en Conceicao er vongóður um að Diaz verði áfram hjá félaginu.

Hann segir jafnframt að félagið ætli ekki að fá James þar sem hann telur að það muni hægja á þróun efnilegra leikmanna liðsins sem leika í sömu stöðu og James.

James hefur sjálfur greint frá því á Twitch að hann hafi áhuga á að ganga til liðs við Porto en hann lék með félaginu frá 2010–2013.
Athugasemdir
banner
banner