Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. ágúst 2021 12:32
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Man City skoraði tvö mörk án þess að reyna á sig"
Stuðningsmenn Arsenal voru ekki spenntir þegar þeir sáu að Kolasinac væri í byrjunarliðinu
Stuðningsmenn Arsenal voru ekki spenntir þegar þeir sáu að Kolasinac væri í byrjunarliðinu
Mynd: Getty Images
Það er hálfleikur í viðureign Manchester City og Arsenal. City er 3-0 yfir en Gundogan, Torres og Jesus skorðuðu mörkin.

Gundogan kom City yfir strax á 7. mínútu og Torres bætti öðru markinu við aðeins fimm mínútum síðar.

Steve McManaman sem lýsir leiknum á BT Sport sagði að fyrstu tvö mörk leiksins hafi verið ansi auðveld hjá City en varnarleikur Arsenal leit ansi illa út. „City skoraði tvö mörk án þess að reyna á sig." Sagði McManaman í útsendingunni.

Stuðningsmenn Arsenal tóku undir það á twitter og voru mjög reiðir út í varnarlínu liðsins. Arsenal er einum manni færri eftir að Granit Xhaka lét reka sig af velli með rautt spjald á 35. mínútu.
Athugasemdir
banner
banner
banner