Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 28. ágúst 2021 16:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mbappe verður í hópnum á morgun
Mynd: Getty Images
Real Madrid bindur vonir um að fá Kylian Mbappe til liðsins fyrir lok gluggans.

PSG leikur gegn Reims í frönsku úrvalsdeildinni á morgun. Mauricio Pochettino segir að Mbappe sé vel undirbúinn fyrir leikinn og verði í hópnum.

„Kylian Mbappe er að æfa vel og undirbúa sig fyrir leikinn á morgun."

Lionel Messi hefur ekki enn spilað leik fyrir PSG síðan hann gekk til liðs við félagið. Neymar hefur heldur ekki spilað á þessari leiktíð. Pochettino segir að Messi, Neymar og Mbappe verði í hópnum.

„Þeir verða í hópnum, við sjáum til hvort þeir verði í byrjunarliðinu eða ekki."
Athugasemdir
banner
banner