Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 28. ágúst 2021 08:00
Victor Pálsson
Raphinha hæstánægður með nýja lagið
Mynd: Getty Images
Vængmaðurinn Raphinha er ekkert nema ánægður hjá Leeds og er ekki að horfa til annars félags en hann hefur verið orðaður við stærri lið í Evrópuboltanum.

Leeds kom upp í ensku úrvalsdeildina á síðustu leiktíð og átti Raphinha ansi gott fyrsta tímabil og heillaði stuðningsmenn liðsins.

Liverpool er á meðal þeirra liða sem hafa verið orðuð við Brasilíumanninn sem er kominn með sitt eigið lag á meðal stuðningsmanna Leeds.

Raphinha er stoltur af þeim áfanga og þakkar stuðningsmönnum Leeds fyrir ástina sem þeir hafa sýnt honum undanfarið ár.

„Ég er svo ánægður hérna. Allir hafa tekið vel á móti mér, stjórinn, eigandin, leikmennirnir, starfsfólkið og stuðningsmenn," sagði Raphinha.

„Vinur minn sendi mér lag um daginn. Ég skildi ekki allt saman en að fá mitt eigið lag er draumur að rætast."

„Það eina sem ég gat hugsað um var að fá að spila fyrir framan fullan völl á Elland Road. Það var erfitt fyrir mig að spila fyrir luktum dyrum því stuðningsmenn spiluðu hlutverk í þeirri ákvörðun að koma til Englands."

„Til stuðningsmanna Leeds, jafnvel þá fann ég fyrir ástinni og ástríðunni. Ég get ekki orðað það hversu þakklátur ég er fyrir hvernig þið tókuð á móti mér."

Athugasemdir
banner