Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. ágúst 2021 06:00
Victor Pálsson
Southampton gæti bætt við sig fleiri leikmönnum
Mynd: Getty Images
Southampton gæti enn bætt við sig fleiri leikmönnum áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 31. ágúst.

Þetta segir Ralph Hasenhuttl, stjóri liðsins, en liðið samdi nýlega við tvo varnarmenn þá Thierry Small og Lyanco.

Samtals hefur Southampton fengið sjö leikmenn inn í sumar en missti á sama tíma tvo lykilmenn í Danny Ings og Jannik Vestergaard.

„Við erum ekki 100 prósent búnir, við munum skoða í kringum okkur," sagði Hasenhuttl.

„Ef það kemur eitthvað áhugavert upp þá gerum við það kannski. Ég tel að þessi gluggi hafi verið góður fyrir okkur hingað til."

„Við breyttum liðinu svolítið og ég hef notið þess að vinna með þessum hóp."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner