Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 28. ágúst 2021 07:30
Victor Pálsson
Útilokar ekki að Maupay fari til Everton
Mynd: Getty Images
Graham Potter, stjóri Brighton, útilokar ekki að Neal Maupay gæti samið við Everton áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Maupay hefur verið orðaður við Everton síðustu daga en Frakkinn kom til Brighton fyrir 20 milljónir punda fyrir tveimur árum.

Rafa Benitez, stjóri Everton, ku hafa áhuga á leikmanninum sem gæti farið miðað við orð Potter í gær.

„Raunveruleikinn er, og stuðningsmenn munu skilja þetta er að þú getur ekki útilokað neitt í fótboltanum," sagði Potter.

„Við skiljum öll að ef Real Madrid eða Barcelona eða einhver annar kemur inn með mikið fjármagn, við vitum hvar við erum í röðinni."

„Við pössum að ákvörðunin sé góð fyrir knattspyrnufélagið og ég held að við verðum að einbeita okkur að því að verða sterkari í lok gluggans en við vorum í byrjun."
Athugasemdir
banner
banner